Lýsing
Hvenær á þessi meðferð við
Þessi meðferð hentar flestum húðgerðum. Styrkleiki sýru er valinn eftir húðgerð.
HVERJIR ERU KOSTIR OG GALLAR ÁVAXTASÝRUMEÐFERÐAR
Árangurinn er jafnara og sléttara yfirbragð, minna áberandi svitaholur, jafnari fituframleiðsla, aukinn raki og hreinni húð. Ein meðferð örvar starfsemi húðarinnar, en bestur árangur næst með 4–6 skiptum eftir því hver húðgerðin er.
HVAÐ GERIST EFTIR MEÐFERÐINA
Eftir meðferð getur verið roði í húðinni í nokkra daga. Pirringur og þurrkur getur gert vart við sig og einnig getur húðin byrjað að flagna. Í sumum tilfellum getur orðið nokkur bólga en það fer eftir styrk sýru sem er notuð hverju sinni. Þessi einkenni minnka yfirleitt eftir því sem meðferðarskiptum fjölgar.
Ekki er ráðlagt að nota farða eða gróf kornakrem nokkra daga eftir meðferðina vegna þess hve húðin er opin viðkvæm. Einnig skal varast sól í nokkra daga þar sem húðin er ljósnæmari á meðan meðferð stendur.
Sleppa sundi í 1-3 daga, fer eftir styrk meðferðar og húðgerð. Sleppa einnig líkamsrækt í 1-2 daga, fer eftir styrk meðferðar og húðgerð.[/mk_fancy_title]


Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.