Chantarelle Ávaxtasýrumeðferð – 3 skipti
56.700 ISK
0-2

Notast er við glycolic og möndlu ávaxtasýrur í meðferðinni sem eru öflugar og hreinar sýrur sem miðar sérstaklega að því að auka heilbrigði húðar, hraða endurnýjunarferli hennar, jafna áferð og húðtón. Meðerðin vinnur einnig vel á bólum og fílapennslum.

Ávaxtasýrur eru frábærar fyrir húðina, sama hvaða vandamál þarf að takast við. Ávaxtasýrur vinna á efsta húðlaginu. Þær hjálpa til við að bæta alla starfsemi húðarinnar. Aðalvirkni ávaxtasýra er að sýrurnar fjarlæga dauðar húðfrumur og örva endurnýjun húðarinnar. Virkni þeirra vinnur þannig að því að jafna áferð húðarinnar og húðlit, hreinsa húðina og draga úr fínum línum og sólarblettum. Ávaxtasýrur virka á ör, bólur, opinni húð, litamismun, dauft litarhaft, eykur kollagen og raka. Ávaxtasýrur hafa einnig stinnandi áhrif, dregur úr öldrunareinkennum.  Ávaxtasýrumeðferð er örugg og áhrifarík meðferð, Húðin verður sjáanlega yngri, ferskari og stinnari.